Bíó og sjónvarp

Victoria í Ugly Betty

Victoria Beckham
Victoria Beckham

Aðstandendur bandaríska gamansþáttarins Ugly Betty hafa gengið frá samningum við kryddpíuna Victoriu Beckham um að hún leiki í tveimur þáttum í næstu seríu þáttaraðarinnar.

Victoria mun tæplega þurfa að reyna mjög á leikræna hæfileika í þáttunum því hún mun leika sjálfa sig í litlu hlutverki. Hin 32 ára gamla Victoria fær um 10 milljónir fyrir hlutverkið en áætlað er að hefja tökur í lok mánaðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×