Bíó og sjónvarp

Carell njósnar

Steve Carell leikur njósnaforingja í fremsta flokki.
Steve Carell leikur njósnaforingja í fremsta flokki.

Hann er heldur skrautlegur leikhópurinn sem tekur þátt í næstu kvikmynd Steves Carell. Vefsíða Empire-tímaritsins greinir frá því að Alan Arkin sé búinn að ráða sig um borð en þeir Carell léku einnig saman í Little Miss Sunshine þar sem Arkin fékk Óskarsverðlaun.

Meðal annarra sem koma við sögu eru fyrrum fjölbragðaglímukóngurinn The Rock sem virðist hafa tekið sér ögn virðulegra listamannsnafn og kallar sig Dwayne Johnson. Þá munu þau Terence Stamp og Anna Hathaway einnig vera meðal leikara en myndin segir frá njósnadeildinni Kontrol sem berst gegn hryðjuverkasamtökunum Kaos.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.