Bíó og sjónvarp

Írak í nýju ljósi á RIFF

Fjórar heimildarmyndir um stríðsrekstur bandamanna í Miðausturlöndum verða sýndar á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík.
Fjórar heimildarmyndir um stríðsrekstur bandamanna í Miðausturlöndum verða sýndar á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík.

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík (RIFF) hyggst sýna fjórar nýjar heimildarmyndir sem varpa mismunandi ljósi á ástandið í Miðausturlöndum. Kastljósinu verður hins vegar fyrst og fremst beint að innrás bandamanna í Írak. Í tilefni af sýningum myndanna verður síðan efnt til málþings um ástandið í Írak og verða leikstjórar heimildarmyndarinnar Meeting Resistance viðstaddir.



Kvikmyndirnar Iraq in Fragments, Shadow Company og áðurnefnd Meeting Resistance fjalla um ólíkar hliðar Íraksstríðsins. Iraq in Fragments fjallar þannig um lífið í stríðshrjáðu landi frá þremur löndum, Shadow Company um störf málaliða í stríðinu og Meeting Resistance um andófshópa sem berjast gegn innrásarhernum. Fjórða myndin tengist síðan stríði bandamanna gegn hryðjuverkum en hún fjallar um dularfullan dauða leigubílstjóra en hann lést af völdum sára sem bandarískir hermenn veittu honum.



Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík hefst 27.september og stendur til 7.október. Þetta er í fjórða sinn sem hún er haldin og hefur hátíðin þegar vakið mikla athygli út fyrir landsteinana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×