Bíó og sjónvarp

Ágúst gerir draugamynd á Grettisgötu

Ágúst hyggst láta söguna gerast í nútímanum og þá væntanlega á Grettisgötunni þar sem hann býr sjálfur.
Ágúst hyggst láta söguna gerast í nútímanum og þá væntanlega á Grettisgötunni þar sem hann býr sjálfur.

„Þetta er bara kvikmynd sem ég ætla að gera og kemst vonandi á koppinn snemma á næsta ári,“ segir Ágúst Guðmundsson, kvikmyndaleikstjórinn góðkunni, en hann leggur nú lokahönd á handrit sem heitir Ófeigur gengur aftur. Ágúst fékk nýlega handritastyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands en síðasta mynd hans, Í takt við tímann, með hinum einu sönnu Stuðmönnum, var framlag Íslendinga í forvalið fyrir Óskarsverðlaunin árið 2005.

Ágúst segir að þetta sé ef til vill ekki drauga­mynd í þeirri merkingu að þeir leiki aðalhlutverkið en vissulega komi framliðnar persónur við sögu. Leikstjórinn segist hafa gengið með þessa hugmynd í maganum undanfarin fimmtán ár og er kampakátur yfir því að hún virðist nú loks ætla að verða að veruleika. „Það var ekki fyrr en ég fluttist á Grettisgötuna að mér fannst ég vera kominn í rétta umhverfið fyrir söguna og leið eins og að hérna gæti myndin gerst,“ útskýrir Ágúst.

Ágúst segist hins vegar sjálfur aldrei hafa lent í draugagangi eða verið svo merkilegur að sjá draug en hann sé, líkt og margir aðrir Íslendingar, upptekinn og heillaður af yfirnáttúrulegum fyrirbærum. „Þetta er kannski það atriði sem sameinar íslenskar kvikmyndir, þessi brennandi áhugi á þessum fyrirbærum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.