Ástfangnir eldri borgarar 10. mars 2007 09:30 Víkingur kristjánsson. Heiður að leika á móti Kristbjörgu
Söngleikurinn Ást eftir Gísla Örn Garðarsson og Víking Kristjánsson verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld. Í verkinu segir frá Nínu, eldri konu utan af landi, sem kemur í skammtímavistun á elliheimili í höfuðborginni, fyrir tilstuðlan ábyrgðarfulls sonar. Á heimilinu er fjörugt félagslíf en vistin hefur ekki þau áhrif á Nínu sem sonurinn hefði óskað. Hugmyndin að verkinu er komin frá Gísla Erni sem fékk Víking í lið. Gísli leikstýrir sýningunni en Víkingur leikur í henni soninn umrædda. Víkingur segir hugmyndina einfalda: að gera söngleik með nýjum dægurlögum, láta eldri hóp leikara syngja þau á frummáli, hann gerist á elliheimili og fléttan væri lítil ástarsaga. Tilgangurinn var síðan að ná saman hópi eldri leikara og sviðslistamanna og fá þá til að flytja verkið. Leikarar eru Kristbjörg Kjeld, Magnús Ólafsson, Theodór Júlíusson, Hanna María Karlsdóttir, Pétur Einarsson, Skapti Ólafsson, Ómar Ragnarsson, Charlotte Böving og Víkingur Kristjánsson. Hanna, Pétur, Theódór og Charlotta koma úr flokki LR. Ómar hóf sinn feril barn að aldri hjá LR og starfaði lengi sem skemmtikraftur. Sem leikari vann hann um skeið við Þjóðleikhúsið. Magnús hefur leikið hjá ýmsum leikflokkum utan starfa sem skemmtikraftur. Skafti var á sínum tíma mikilvirkur dægurlagasöngvari. Kristbjörgu er óþarft að kynna. Auk þeirra kemur fram í sýningunni tíu manna kór. Víkingur segir það hafa gengið vel hjá þeim félögum að koma verkinu saman, erfiðast hafi reynst að finna texta og lög til að falla rétt í framgang fléttunnar. Þeir leiti víða fanga, þarna eru lög úr söngbók Bítlanna en líka yngra popp. Tónlist fylgir öllu verkinu og er samin og flutt af Pálma Sigurhjartarsyni en hann útsetti einnig sönglögin sem eru flutt af bandi. Víkingur segir það mikla reynslu fyrir unga leikara að vinna með jafnreyndu fólki og þarna er á ferðinni. Það sé persónulega fyrir sig stór áfangi að leika á móti Kristbjörgu svo dæmi sé tekið. Hann segist viss um að eldri leikhúsgestir fagni þessu verki en þeir yngri hafi ekki síður gaman af, forsýningar hafi leitt það í ljós. Vesturport er enn á fullu með leikferðir til meginlandsins og verða að leika Woyzeck í Amsterdam í apríl og framundan er för til Spánar. Þá er undirbúningur að hefjast fyrir uppsetningu hópsins á Fást og verður það þriðja sviðsetning hér á landi á verki Goethes. pbb@frettabladid.is
Mest lesið „Það var eiginlega ég sem bað hann um að giftast mér, held ég“ Lífið Kolbeinn Sigþórsson selur útsýnisíbúð á Kársnesinu Lífið Fékk yfir sig olíugusu við tökur á sjónvarpsþáttum Bíó og sjónvarp „Hugsuðum hver andskotinn væri í gangi“ Lífið Bara með bótox og biður um að vera látin í friði Lífið „Þarna fékk ég að kynnast því hvað þunglyndi er“ Lífið Sleit sambandinu með símtali Lífið Heiðar Logi og Anny Björk eiga von á barni Lífið „Smá stress en alltaf jafn skemmtilegt“ að elda ofan í Ramsay Matur Ekki meira en bara vinir Lífið Fleiri fréttir Fékk yfir sig olíugusu við tökur á sjónvarpsþáttum Robert Downey Jr snýr aftur í Marvel-heima Stikla úr ungstjörnumyndinni sem sló í gegn í Cannes „Það er frábært bíóveður“ Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Tobey Maguire er á landinu Fyrsta stiklan úr Gladiator II Jon Landau er látinn Brad Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira