Bíó og sjónvarp

Epli og eikur hjá Hugleik

Nýtt verk eftir Þórunni Guðmundsdóttur verður frumsýnt í kvöld.
Nýtt verk eftir Þórunni Guðmundsdóttur verður frumsýnt í kvöld. Mynd/hugleikur

Leikfélagið Hugleikur frumsýnir í kvöld nýtt leikrit eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Verkið Epli og eikur er gamanleikur með söngvum sem fjallar um ástir og áhugamál nokkurra einstaklinga sem tengjast ýmsum böndum.

Hin margslungnu samskipti persónanna þróast á fyndinn og blæbrigðaríkan hátt þar sem ýmsum brögðum er beitt við persónusköpun og allt litróf tungumálsins er lagt undir, eins og höfundi einum er lagið. Leikstjóri sýningarinnar er Oddur Bjarni Þorkelsson.

Hugleikur er eitt öflugasta áhugaleikfélag landsins en það hefur starfað óslitið í Reykjavík frá árinu 1983 og er fjöldi verka sem félagið hefur sett upp farin að nálgast hundraðið. Félagið setur eingöngu upp frumsamin verk eftir félagsmenn og hafa höfundar úr röðum Hugleiks einnig skrifað fyrir merkustu leiklistarstofnanir landsins, svo sem Sjónvarpið, Leikfélag Akureyrar og Þjóðleikhúsið, auk fjölda áhugaleikfélaga.

Sýningar á verkinu fara fram í Möguleikhúsinu við Hlemm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×