Bíó og sjónvarp

Endirinn ræddur

Ekki er vitað hvenær bandaríska þáttaröðin mun ljúka göngu sinni.
Ekki er vitað hvenær bandaríska þáttaröðin mun ljúka göngu sinni.

Framleiðendur þáttaraðarinnar Lost eru í viðræðum við sjónvarpsstöðina ABC um hvenær þættirnir eigi að enda.

Ekki er búist við að þættirnir ljúki göngu sinni á næstunni en framleiðendurnir vilji hafa það á hreinu hvenær lokaþátturinn verði til að auðveldara sé að skipuleggja komandi þætti.

Dregið hefur úr áhorfi á þriðju þáttaröð Lost bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Framleiðendurnir segja þó ekki mikið að marka það því fyrstu tvær þátta­raðirnar hafi náð svo gríðarlegum vinsældum að erfitt sé að halda í við þær.

Engu að síður vilja þeir hætta með þáttaröðina á toppnum. Þættirnir The X-Files hafi til að mynda gengið tveimur þáttaröðum of lengi, sem þeir vilji ekki að eigi sér stað með Lost.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.