Bíó og sjónvarp

Ný dönsk glæpasería byrjar

Sofie Graböl leikur ungan lögregluforingja
Sofie Graböl leikur ungan lögregluforingja Ljósmynd/Tine Harden

Ný dönsk glæpasería hóf göngu sína á sunnudagskvöldið á DR1 - Forbrydelsen – Glæpurinn – heitir hún og mun skemmta dönskum sjónvarpsáhorfendum næstu mánuði en þættirnir verða tuttugu að tölu og eru á dagskrá á sunnudagskvöldum á besta tíma á DR1.

Innkaupadeild ríkissjónvarpsins hefur þegar tryggt sér þættina en ekki er ráðið hvenær þeir fara á dagskrá. Ríkissjónvarpið hefur haft gott upp úr dönskum þáttaröðum hin síðari misseri: síðustu þættirnir af Krónikunni fóru reyndar fyrir ofan garð og neðan hjá íslenskum sjónvarpsáhorfendum, voru lítið kynntir af sjónvarpinu, en þar voru allir endar hnýttir. Örninn hefur skemmt íslenskum áhorfendum undanfarin misseri og þar á undan voru þættir á borð við Taxa, Forsvar og Nikolej og Julía vinsælir. Stöð 2 sýndi Rejseholdet líka við góðar undirtektir.

Forbrydelsen er samin af Sören Sveistrup, en hann var aðalhöfundur Nikolej og Júlíu. Þaðan fekk hann leikkonuna Sophie Gråbøl sem leikur Söru Lund, unga lögreglukonu sem hyggst flytja til Svíþjóðar en lendir ásamt eftirmanni sínum í rannsókn á hvarfi ungrar stúlku.

Sofie Gråbøl er líka hátt skrifuð leikkona, bæði fyrir sjónvarpsleik sinn, leik í kvikmyndum og á sviði. Gagnrýnendur segja framleiðendur hafa lært sitt af velgengni nokkurra raða og nefna þeirra á meðal svo ólíka þætti sem 24, Rejseholdet og Kóngakapalinn sem hér hefur enn ekki sést, en allt eru þetta þrautskipulagðir formúluþættir. Annar þátturinn verður á dagskrá á DR 1 kl. 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.