Lífið

Pönkið aftur í sviðsljósið

"Ég bara treysti því að menn fari vel með þetta," segir tónlistarmaðurinn Einar Örn Benediktsson en annað kvöld, föstudag, verða tónleikar á Grand Rokk, Smiðjustíg 6, þar sem fram kemur hljómsveitin P.P. Um er að ræða svokallað "tribute"-band eða hljómsveit sem gagngert hefur verið sett saman til heiðurs hljómsveitinni Purrki Pillnikk en sú hljómsveit hélt lokatónleika sína fyrir réttum aldarfjórðungi.

Purrkur Pilnikk var íslensk hljómsveit sem starfaði á 1981-82 hún var í forsvari fyrir nýja íslenska tónlist, sem spratt upp úr síðpönkinu í lok áratugarins á undan. Meðlimir Purrks Pillnikk voru, Ásgeir Bragason trommuleikari, Bragi Ólafsson bassaleikari, Einar Örn Benediktsson rödd og Friðrik Erlingsson gítarleikari.

Purrkur Pillnikk var afkastamikil hljómsveit, en hún gaf út 10 laga smáskífuna Tilf í apríl 1981, síðan fylgdi Ekki enn þá um haustið. Vorið 1982 kom út önnur stór plata þeirra, Googooplex. No time to think var 4 laga smáskífa. Maskínan var tónleikaplata. Alls gaf hljómsveitin út yfir fimmtíu lög á þessum plötum.

Einnig kom hljómsveitin fram á yfir 60 tónleikum á þeim stutta tíma sem hún starfaði. Það var yfirlýst stefna Purrksins að stoppa aldrei, verða aldrei iðjulausir, koma með ný lög og nýjar tilfinningar á hverja einustu tónleika.

Hljómsveitin kom fyrir í myndinni Rokk í Reykjavík eftir Friðrik Þór Friðriksson þar sem Einar Örn lét hin frægu orð falla að maður þyrfti ekki að kunna á hljóðfæri til þess að vera í hljómsveit. Sú fullyrðing kallast á við annan þekktan frasa sem sumir vildu kalla mottó Purrksins: Málið er ekki hvað maður getur, heldur hvað maður gerir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×