Bíó og sjónvarp

Vill sexalógíu

Arnold Schwarzenegger lék Tortímandann eftirminnilega í þremur myndum.
Arnold Schwarzenegger lék Tortímandann eftirminnilega í þremur myndum.

Kvikmyndaframleiðandinn The Halcyon Co. hefur keypt sýningarréttinn að kvikmyndunum um Tortímandann og ætlar sér að búa til þrjár myndir til viðbótar þannig að úr verði sexalógía.

Nýi eigandinn ætlar að hefja þegar í stað undirbúning að Terminator 4 og vonast til að frumsýna myndina árið 2009. Enginn leikari eða leikstjóri hefur ennþá verið ráðinn vegna myndarinnar.

Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, fór með hlutverk Tortímandans í þremur myndum sem nutu allar mikilla vinsælda. Síðasta myndin í seríunni, Terminator 3: Rise of the Machines, kom út fyrir fjórum árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×