X-ið fékk reykvískt páskaegg frá Alcan 31. mars 2007 14:15 X-ið hefur keyrt ákaflega tvíræðar auglýsingar fyrir kosningarnar um stækkun álversins. „
Þeir styðja augljóslega stækkun álversins en hafa aðrar röksemdafærslur en við. Og við í Alcan vildum bara þakka þeim fyrir stuðninginn," segir Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi álversins í Straumsvík sem mætti í höfustöðvar X-ins 977 í Skaftahlíð í gærmorgun og afhenti forsvarsmönnum útvarpsstöðvarinnar forláta páskaegg númer 7 frá Nóa Siríus. Útvarpsstöðin hefur tekið virkan þátt í kosningabaráttunni sem hefur verið í gangi í Hafnarfirði vegna kosninga um stækkun Álversins sem verða í dag. Auglýsingarnar hafa vakið verðskuldaða athygli og þykja meira en lítið tvíræðar. „Heit mengun er betri en skítakuldi - segjum já við stækkun álversins" og „Ósonlagið er ofmetið". Hrannar gaf útvarpsstöðinni páskaegg frá reykvísku súkkulaðiverksmiðjunni Nóa Siríus. Þorkell Máni Pétursson, dagskrárstjóri X-ins 977, var að vonum sáttur við gjöfina frá Alcan en bætti því við að útvarpsstöðin myndi sennilega gefa páskaeggið. Enda myndu þeir ekki gefa út opinberlega sína skoðun á stækkuninni. „Við höfum fengið sterk viðbrögð við þessari herferð og fólk úr báðum fylkingum hefur þakkað okkur fyrir stuðninginn," segir Máni. „Og við höfum auðvitað líka fengið skammir í hattinn," bætir Máni við sem jafnvel hefur verið vakinn um miðja nætur af fólki sem vildi ræða málin við hann. „Fólk hefur meira að segja verið að hringja í okkur úr álverinu þannig að þessar kosningar eru greinilega mikið tilfinningamál," bætir Máni við.
Mest lesið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Laufey á lista Obama Lífið Úr öskunni í eldinn Gagnrýni „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Lífið Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Lífið Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Lífið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Lífið Fleiri fréttir Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Sjá meira