Bíó og sjónvarp

James Bond etur kappi við Bretadrottningu

Hennar hátign, Bretadrottning og starfsmaður í þjónustu hennar, James nokkur Bond, takast á um toppsæti BAFTA verðlaunanna. Tilnefningar til verðlaunanna voru kynntar í dag. Nýja James Bond kvikmyndin, Casino Royale, fékk alls níu tilefningar en The Queen, þar sem Helen Mirren leikur Bretadrottningu í krísu vegna láts Díönu prinsessu fær 10 tilnefningar.

Aðalleikarar beggja mynda eru einnig tilnefndir fyrir bestan leik í aðalhlutverki karla og kvenna, Daniel Craig sem Bond og Mirren sem Elísabet Bretadrottning.

Helen Mirren á svo í keppni við Judi Dench fyrir Notes On A Scandal, Kate Winslet fyrir Little Children, Penelope Cruz fyrir Volver and Meryl Streep fyrir The Devil Wears Prada.

Bond á hins vegar í höggi við Leonardo DiCaprio fyrir The Departed, Richard Griffiths fyrir The History Boys, Forest Whitaker fyrir The Last King Of Scotland og Peter O'Toole fyrir Venus.

Tilnefningar fyrir bestu myndina fá Babel, The Departed, The Last King Of Scotland, Little Miss Sunshine og The Queen.

Leikstjóraverðlaunin lenda hjá Alejandro Gonzalez Inarritu (Babel), Martin Scorsese (The Departed), Jonathan Dayton/Valerie Faris (Little Miss Sunshine), Stephen Frears (The Queen) eða Paul Greengrass (United 93).





Fleiri fréttir

Sjá meira


×