Bíó og sjónvarp

Kraftmikill Grettir

Hluti hljómsveitarinnar ásamt nokkrum af leikurunum í Gretti að syngja inn á plötu sem verður gefin út samhliða frumsýningu söngleiksins.
Hluti hljómsveitarinnar ásamt nokkrum af leikurunum í Gretti að syngja inn á plötu sem verður gefin út samhliða frumsýningu söngleiksins.

Upptökum er að ljúka á tónlist við söngleikinn Grettir sem verður frumsýndur þann 30. mars. „Þetta hefur gengið mjög vel,“ segir Hallur Ingólfsson, tónlistarstjóri hljómsveitarinnar sem hefur staðið í ströngu við upptökunar.

Sjálfur spilar hann á trommur í sveitinni en auk hans skipa hana Elís Pétursson úr Jeff Who á gítar, Þorbjörn Sigurðsson úr Dr. Spock og Jón Atli úr Hairdoctor á bassa. „Við náum vel saman og þess vegna tókum við þetta eiginlega allt upp „live“ út af þessu „energíi sem er í hljómsveitinni,“ segir hann.

Tónlistin í verkinu var samin af Þursaflokknum í kringum 1980. „Þetta er íslenskt, mystískt, kraftmikið og fyndið og svolítið dramatískt,“ segir Hallur. „Sumt er líka létt og skemmtilegt.“

Söngleikurinn fjallar um Gretti, sem er utanveltu í samfélaginu og virðist hvorki ná að fóta sig í skóla né félagslífinu. Skyndilega verður hann mesta sjónvarpsstjarna Íslands og kraftakarl, nánast ofurhetja. Jóhann Sigurðarson og Birgitta Birgisdóttir fara með tvö af helstu hlutverkunum í söngleiknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.