Lífið

Britney að syngja með Marilyn

Britney á góðum degi.
Britney á góðum degi. MYND/Vísir

Samkvæmt nýjustu fregnum ætlar Britney Spears sér að gefa út nýtt lag. Lagið verður dúett og sú sem syngur með henni verður engin önnur en Marilyn Monroe. Breska blaðið Daily Star skýrði frá þessu í dag.

Þrátt fyrir að langt sé síðan að Marilyn hætti að syngja mun hún hefja upp raust sína með Britney. Talið er að lag sem Marilyn tók upp á sjötta áratugnum verði notað og Britney síðan syngja yfir það. Lagið heitir Down Boy og var aldrei gefið út. Í myndbandinu við lagið mun Britney klæðast kjól í stíl sjötta áratugarins - og, ótrúlegt en satt - verða með aflitaða hárkollu.

Britney ætlar sér að gefa út nýjan disk í október á þessu ári og hefur hún þegar hafið undirbúning að tónleikaferðalagi til þess að fylgja útgáfu hans eftir.

Ekki náðist í talsmenn Britney í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.