Bakþankar

Hver sigrar?

Fá umræðuefni þykja skemmti­legri umræðuefni en hörmungar. Þá einkum og sér í lagi þegar þær snúa að þjáningum fallegs fólks sem hefur átt velgengni að fagna. Öll vitum við af hungri, sjúkdómum og kúgun í heiminum en það er viðvarandi og víðfeðmt vandamál sem erfitt er að persónugera og því fremur óheppilegt skemmtiefni yfir kaffibolla eða netskrifum. Hin laglega McCann-fjölskylda hefur aftur á móti verið fullkominn efniviður góðs kjaftagangs.

Í Bretlandi hefur þessi fjölskylda verið á forsíðu fjölda blaða nær daglega frá því litla stúlkan hvarf í byrjun maí. Á ferð minni um Bretland fyrir skömmu fylgdist ég grannt með umfjöllun um málið og dró þá ályktun að ekkert hefði komið meira í ljós við rannsókn lögreglu og fjölmiðla á hvarfi Madeleine annað en að hún hvarf. Hins vegar hefur líf, starf og sorgir foreldranna orðið öllum ljóst. Svo víðfræg eru þau orðin að breskir gárungar eru farnir að uppnefna þau „Beckham-fjölskyldu sorgar­innar".

Victoria og David fullnægja fréttalöngunum fólks um ríkidæmi og gjálifnað en Kate og Gerry fullnægja löngunum þeirra sem finna fró í að velta sér upp úr sorgum annarra, nú eða leika löggu og dómara í senn.

Hér á landi, sem og annars staðar, eru fréttir af þessum harmleik iðulega birtar í fjölmiðlum. Þegar þær fara á netið hefur það ekki brugðist að sjálfskipaðir sér­fræðing­ar leggja undir sig fréttina í gegnum athugasemdakerfin. Suma hefur alltaf grunað frá fyrstu stundu að foreldarnir beri ábyrgð á hvarfinu. Hinir slá svo á puttana á viskubrunnunum í gegnum lykla­borðið með því að slengja fram útjaskaða máltækinu „aðgát skal höfð í nærveru sálar".

FÁ mál hafa fengið jafn mikið umtal á þessari öld og hvarf Madeleine litlu. Því er eðlilegt að allir vilji tala um það og hafa skoðun á því. En eiginlega er þetta allt saman farið að líkjast óhemju öfgakenndu raunveruleikasjón­varpi. Miklar fjárupphæðir hafa safnast til hjónanna og almenningur skiptist í tvö lið; þá sem halda með portúgölsku lögreglunni og þá sem halda með foreldrunum. Allir geta haft skoðun á framvindu málsins í gegnum netið og þannig keyrt atburðarásina áfram.

Almennings­álitið sveiflast til og frá og gríðar­legur þrýstingur er á að sigurvegari og sökudólgur verði fundnir innan skamms. Örlög Madeleine og annarra týndra barna eru orðið aukaatriði í söguþræðinum.






×