Lífið

Vill meira kúldur, knús, partí og pjús á Alþingi

Lára Stefánsdóttir forseti Pjúsarafélags Íslands býður sig fram til þingsetu í vor.
Lára Stefánsdóttir forseti Pjúsarafélags Íslands býður sig fram til þingsetu í vor. MYND/KK

„Pjúsari nýtur unaðssemda hins tænivædda heims,“ segir Lára Stefánsdóttir kennari, sem skipar þriðja sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningar í vor og er jafnframt æviráðinn forseti íðilstjórnar Pjúsarafélags Íslands.

Lára er titluð pjúsari í símaskránni, en samkvæmt heimasíðu Pjúsarafélags Íslands, www.pjus.is, er markmið félagsins að veita núverandi og upprennandi pjúsurum stuðning til áframhaldandi pjúss.

Félagið er sprottið upp úr upphafi internetvæðingar Íslands. „Ég tók þátt í því að stofna Íslenska menntanetið á sínum tíma og barðist fyrir því að það yrðu opnaðar spjallrásir á Íslandi til að ungt fólk úr hinum ýmsu skólum gæti spjallað saman á Netinu,“ segir Lára.

„Mér fannst eðlilegt eins og staðan var þá að ég liti til með þeim og var því dálítið á spjallrásunum með þeim. Eitt kvöldið kvaddi ég þau með orðunum: Kúldrist nú og knúsist, partíist og pjúsis. Þetta þótti þeim svona rosalega fyndið og þau byrjuðu að nota orðið „pjús“ í miklu magni,“ segir Lára.

Pjúsið þróaðist áfram og meðal annars Lára samdi þjóðsöng pjúsara. Árið 1998 var Pjúsarafélag Íslands loks formlega stofnað.

Margar hefðir eru innan félagsins og eiga pjúsarar sér meira að segja eigin orðabók. „Við höldum svo aðalfundinn okkar árlega á Ruby Tuesday þar sem okkur ber að panta alla eftirrétti á matseðlinum,“ segir Lára.

Lára skipar 3. sæti framboðslista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi kosningar. „Það er sannarlega kominn tími á pjúsara á þing,“ segir Lára. „Kúldur, knús, partí og pjús munu aukast af miklum mun í þingheimi.“

Lára hefur unnið við tölvur frá því á níunda áratugnum og segir marga vera hissa á því að miðaldra amma þekki eitthvað til tækninnar. Aðspurð hvort hún væri aldursforseti félagsins, segir Lára það ekki vera mikilvægt í augum pjúsara. „Aldur skiptir okkur ekki máli. Við erum bara nördar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.