Á leiklistarhátíð í Kóreu 7. júlí 2007 07:00 Til Kóreu að leika. Huld Óskarsdóttir og Álfheiður dóttir hennar, sem fæddist í leigubíl fyrr á árinu, eru á leið á leiklistarhátíð í Kóreu í lok mánaðarins. MYND/Rósa
Huld Óskarsdóttir og félagar úr leiksýningunni Memento Mori eru á leið til Suður-Kóreu til að sýna. Huld segir þetta mikinn heiður. „Við erum öll rosalega spennt fyrir því að fara svona langt,“ segir Huld Óskarsdóttir, einn leikaranna úr leiksýningunni Memento Mori, sem hefur verið boðið til Suður-Kóreu á alþjóðlega áhugamanna- leiklistarhátíð IATA-samtakanna. „Þetta er allra stærsta hátíðin sem er haldin í heiminum fyrir áhugaleikhúsfólk. Það eru bara tuttugu sýningar sem eru valdar úr stórum hópi umsækjenda þannig að þetta er mikill heiður fyrir okkur.“ Huld hefur farið til nokkurra landa til að sýna leikrit. Hún segir að það sé ótrúlega skemmtilegt að sjá heiminn með þessum hætti. Þau séu með heimamönnum allan tímann og upplifi löndin allt öðru vísi en ef þau væru ferðamenn. „Við fórum til Lettlands að sýna og þar var okkur tekið eins og þjóðhetjum. Sumt fólkið hafði aldrei séð ferðamenn áður og krakkarnir í barnaskólanum voru búnir að vinna verkefni um Ísland í þrjár vikur í tilefni komu okkar.“ Hún hlakkar líka mikið til að koma til Kóreu og upplifa allt aðra menningu og siði en við þekkjum frá Vesturlöndum. Sýningin Memento Mori er frumsamið verk eftir Hrefnu Friðriksdóttur, lögfræðing hjá Barnaverndarstofu, sem fjallar um dauðleikann. Þetta er samstarfsverkefni Leikfélags Kópavogs og Hugleiks og var upphaflega sett upp árið 2004. Leikhópurinn fór með sýninguna á alþjóðlegu leiklistarhátíðina sem var haldin á Akureyri fyrir tveimur árum og unnu þar verðlaun fyrir bestu sýninguna. Þau fóru einnig með hana á hátíð í Færeyjum í fyrra. „Alls staðar þar sem við höfum sýnt höfum við fengið boð um að sýna á fleiri hátíðum erlendis en þetta er auðvitað dýrt og tímafrekt og við erum öll að vinna við eitthvað annað líka.“ Leikhópurinn stendur fyrir opnum fjáröflunaræfingum í dag og á morgun. „Sýningin er sýnd í heild sinni en ekki með öllum ljósunum og svona, þess vegna köllum við þetta opna æfingu en ekki sýningu,“ segir Huld. Sýningarnar verða í Möguleikhúsinu við Hlemm klukkan 20 bæði kvöldin.
Mest lesið Maggie Smith er látin Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Lífið Fleiri fréttir Ný kitla: Ellie og Joel komast aftur í hann krappan Hjem til jul aftur á skjáinn Segir Murphy gera lítið úr kynferðisofbeldi Frumsýning á Vísi: Helga Braga í kolsvartri kómedíu Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Kynntu dagskrá RIFF 2024 Þakkaði fyrir sig á íslensku Shogun á spjöld sögunnar á Emmy verðlaunahátíðinni Snerting framlag Íslands til Óskarsins „Myndin byggir á minni eigin lífsreynslu“ Hlátur og grátur á Ljósvíkingum Ljósbrot valin besta norræna kvikmyndin Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Svörtu söndum 2 Ældi næstum úr stressi á Cannes Myndaveisla: Rauður dregill og troðfullt hús á Ljósbroti Snerting hlaut eftirsótt verðlaun Snerting tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Jökull í Kaleo í Glæstar vonir Ljósbrot í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna Ólafur Darri og Hera Hilmars saman á skjánum í fyrsta sinn Lynch ólíklegur til að leikstýra aftur vegna Covidhræðslu Stórstjörnur í kvikmynd um fundinn í Höfða Sjá meira