Handbolti

Íslendingar mæta Dönum

Leikmenn danska landsliðsins fagna sigri sínum á Tékkum í kvöld.
Leikmenn danska landsliðsins fagna sigri sínum á Tékkum í kvöld. MYND/Getty

Nú er orðið ljóst að það verða Danir sem mæta Íslendingum í 8-liða úrslitum HM í handbolta á þriðjudag. Danir lögðu Tékka af velli í Mannheim í kvöld þar sem lokatölur urðu 33-29. Þar sem Spánverjar töpuðu fyrir Króötum í dag fara Danir upp í annað sæti millriðils 2 og mæta þar með Íslendingum, sem höfnuðu í þriðja sæti milliriðils 1.

Leikirnir í 8-liða úrslitum HM eru sem hér segir:

Pólland-Rússland

Þýskaland-Spánn

Ísland-Danmörk

Frakkland-Króatía

Leikirnir fara allir fram á þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×