Sport

Anaheim 3 úrslit.

Stewart sigar í Anaheim 3
Mynd/TWMX

James Stewart var fljótastur alla helgina og náði hann að landa sínum þriðja sigri í Anaheim í Kalíforníu. Chad Reed lét hann þó vinna fyrir kaupinu sínu og virðist sem hann sé allur að koma til eftir að hafa meiðst á öxl en hann lenti í öðru sæti. Tim Ferry endaði þriðji,30 sekúndum á eftir fyrsta manni.

Í Minni flokknum var það Ryan Villopoto sem sigraði líkt og áður og virðist enginn hafa tærnar þar sem hann hefur hælana.Josh Grant endaði annar og þriðji var Jason Lawrance.

Ricky Carmichael var ekki með en hann endaði fyrstur í San Fransisco eftir gríðar skemmtilega keppni.Hann mun ekki taka þátt í næstu þrem keppnum þar sem æfingar standa yfir hjá Nascar liðinu hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×