Fastir pennar

Endurtekur sagan sig?

Stjórnmálaflokkarnir halda allir landsfundi eða flokksþing

í aðdraganda kosninganna í vor. Framsóknarflokkurinn

hefur átt í vök að verjast umfram aðra flokka undanfarin

misseri. Í því ljósi má segja að flokksþingið nú hafi með

ákveðnum hætti verið honum mikilvægara en öðrum

flokkum.

Málefnaundirbúningur flokksþingsins bar öll merki vandaðrar

og málefnalegrar vinnu. Ályktunartillögur um utanríkis- og

Evrópumál byggðust til að mynda á ábyrgum og raunsæjum

sjónarmiðum. Þá komu fram athyglisverðar hugmyndir um breytingar

á kosningaskipan og skipulagi stjórnarráðsins.

Ræða flokksformannsins var um flest málefnaleg með hvassri

gagnrýni á þá flokka sem framsóknarmenn telja að hafi helst náð

frá þeim fylgi. Annað verður ekki sagt en að kraftur og þungi hafi

verið í ræðu hans.

Allt yfirbragð flokksþingsins var á þann veg að ætla má að þeir

forystumenn sem þar komu saman séu ráðnir í að ganga fram af

fullri einurð í komandi kosningabaráttu. Þegar á þessa hefðbundnu

mælikvarða er litið sýnist Framsóknarflokkurinn frekar hafa sótt

í sig veðrið en hitt.

Hætt er hins vegar við að uppljóstrun heilbrigðis- og tryggingaráðherra

um að forystumenn flokksins hafi að undanförnu lagt á

ráðin um stjórnarslit og myndun nýrrar minnihlutastjórnar fyrir

kosningar hafi í einhverjum mæli dregið athyglina frá þinginu

sjálfu og ræðu formannsins.

Málið snýst um að festa í stjórnarskrá hugtakið þjóðareign á auðlindum.

Formaðurinn hefur staðfest að þau sjónarmið séu uppi sem

heilbrigðis- og tryggingaráðherra hefur lýst en eigi að síður viti

hann ekki til þess að ágreiningur sé um málið. Ýmsir hafa reyndar

undrast hversu lengi framsóknarmenn hafa dregið að búa til stöðu

sem miðaði að því að greina þá frá samstarfsflokknum.

Formaður þingflokks Samfylkingarinnar hefur réttilega vakið

athygli á því að Framsóknarflokkurinn kaus að hreyfa þessu máli

ekki í stjórnarskrárnefnd. Með því að flokkurinn hafði ákveðið að

nota það sem stjórnarslitahótun var rétt og eðlilegt að gera það við

ríkisstjórnarborðið en ekki í sjálfstæðri nefnd sem ætlað var að

vinna á öðrum forsendum.

Svo er það stóra spurningin: Hverjir eru líklegastir til að græða

á hugsanlegum stjórnarslitum? Skoðanakannanir sýna talsverða

þreytu með stjórnarsamstarfið, ævintýralega sókn Vinstri grænna

og ósk nærri helmings kjósenda um áframhaldandi stjórnarforystu

núverandi forsætisráðherra.

Ef kjósendur þurfa ekki að nota atkvæðaseðilinn til þess að koma

þreyttu samstarfi frá völdum gæti því svo farið að forystuflokkurinn

í ríkisstjórn græddi mest á stjórnarslitum nú. Það gerðist við

svipaðar aðstæður 1979 þegar óvinsælt vinstra samstarf var óvænt

rofið með myndun minnihlutastjórnar og kosningum í kjölfarið.

Þá vann Framsóknarflokkurinn, sem verið hafði í stjórnarforystu,

verulega á. Alþýðuflokkurinn, sem rauf samstarfið, tapaði miklu

og Sjálfstæðisflokkurinn, sem mælst hafði með yfir 50% skoðanakannanafylgi

í stjórnarandstöðu, missti flugið. Þessi saga gæti allt

eins endurtekið sig að breyttu breytanda.






×