Handbolti

Valsmenn á toppinn

MYND/ Valli

Valsmenn eru einir í efsta sæti DHL-deildar karla í handbolta eftir leiki dagsins. Valur vann góðan sigur á Akureyri 32-28, en á sama tíma gerðu HK-menn jafntefli við Fylki 25-25 í Digranesi. Þá unnu ÍR-ingar óvæntan sigur á Haukum 32-27.

Valur er í efsta sæti deildarinnar eftir 15. umferðir og hefur hlotið 23 stig, HK er í öðru sæti með 22 stig, Stjarnan í þriðja með 18 og Fram í fjórða með 17.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×