Grindavík vann Keflavík 116 - 99 5. mars 2007 21:48
Grindvíkingar sigruðu Keflvíkinga í suðurnesjaslag í Iceland Express deildinni í körfuknattleik í kvöld, 116 - 99. Leikurinn fór fram í Grindavík. Keflvíkingar byrjuðu leikinn betur en eftir fyrsta leikhluta tóku Grindvíkingar við sér og voru brátt skrefi á undan Keflavík og voru það það sem eftir lifði leiks. Keflvíkingar komust þó ávallt nálægt því að jafna metin eftir að Grindvíkingar höfðu aukið muninn. Í hálfleik var staðan 63 - 58 heimamönnum í vil. Í fjórða leikhluta fóru Grindvíkingar síðan að spila betri vörn og sigu að lokum fram úr. Að sögn Friðriks Inga Rúnarssonar, framkvæmdastjóra KKÍ, sem var á leiknum, var leikurinn skemmtilegur á að horfa. „Það er alltaf mikið um sóknar bolta þegar þessi lið mætast, þau vilja gjarnan spila hratt og skjóta mikið fyrir utan og því var mikið skor í þessum leik. Grindvíkingar voru vel komnir að sigrinum. Keflvíkingar voru að spila án Bandaríkjamanns í kvöld og það getur verið að það hafi haft áhrif.“ sagði hann í samtali við Vísi. Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, sagði í samtali við Vísi eftir leikinn að hann hefði verið ánægður með alla sína menn. „Það voru margir sem spiluðu vel og við rúlluðum á öllum þeim mönnum sem við höfðum. Liðið var líka léttara og hraðara nú þar sem Calvin Clemmons er farinn. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa, hraður og mikið skor. Það sem gerði síðan gæfumuninn var að við náðum að loka á þá í vörninni í fjórða leikhluta.“
Íþróttir Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fleiri fréttir Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Sjá meira