Körfubolti

Grindvíkingar höfðu sigur í Fjósinu

Mynd/Víkurfréttir

Grindvíkingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Skallagrím í Borgarnesi í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar í kvöld. Staðan var jöfn 94-94 eftir venjulegan leiktíma, en gestirnir höfðu betur í framlengingu og höfðu 112-105 sigur í æsilegum leik. Liðin mætast á ný í Grindavík um helgina og þar geta heimamenn tryggt sér sæti í undanúrslitum mótsins.

Þá höfðu Njarðvíkingar nauman sigur á Hamar/Selfoss í Njarðvík 79-75 þar sem gestirnir voru m.a. sjö stigum yfir um miðjan síðari hálfleik og einu stigi yfir þegar aðeins mínúta var eftir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×