Körfubolti

Snæfell komið í undanúrslit

Snæfell varð í dag fyrsta liðið til að tryggja sig í undanúrslitin í úrslitakeppninni í Iceland Express deildinni þegar liðið lagði Keflvíkinga 103-89 í Keflavík. Snæfell vann báða leiki liðanna og mætir sigurvegaranum úr einvígi KR og ÍR. Í því einvígi unnu KR-ingar öruggan 87-78 sigur á ÍR á útivelli í dag og knúðu þar fram oddaleik.

Pálmi Sigurgeirsson skoraði 16 stig fyrir KR í dag, Jeremiah Zola 15 og hirti 10 fráköst, Tyson Patterson skoraði 14 stig og gaf 10 stoðsendingar og Darri Hilmarsson skoraði 13 stig.

Hjá ÍR var Keith Vassell stigahæstur með 22 stig, Nate Brown skoraði 18 stig og gaf 10 stoðsendingar og Steinar Arason skoraði 13 stig - þar af fjóra þrista í síðari hálfleik. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×