Handbolti

Kiel í úrslit meistaradeildarinnar

Þýska liðið Kiel bar í kvöld sigurorð af spænska liðinu Portland-San Antonio í undanúrslitum meistaradeildarinnar í handbolta, 37 - 34. Þetta var seinni leikur liðanna og vann Kiel samtals 65 - 64. Jafnt var með liðunum framan af leik en þegar líða tók á seinni hálfleikinn seig Kiel fram úr. Góð markvarsla og nýting á færum var það sem skildi á milli liðanna á þeim kafla. Áhorfendur voru vel með á nótunum en leikurinn fór fram á heimavelli Kiel.

Frakkinn Nikola Karabatic skoraði 10 mörk fyrir Kiel og svíinn Stefan Lövgren skoraði 8. Hjá Portland var Carlos Parasin með 12 mörk og króatíski landsliðsmaðurinn Ivano Balic setti tíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×