Körfubolti

Grindavík knúði fram oddaleik

Páll Axel Vilbergsson og félagar fóru á kostum í kvöld
Páll Axel Vilbergsson og félagar fóru á kostum í kvöld

Grindvíkingar tryggðu sér í kvöld oddaleik gegn Njarðvík í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar með 81-71 sigri í fjórða leik liðanna í Grindavík. Staðan er jöfn í einvíginu 2-2 og því verða þau að mætast í hreinum úrslitaleik í Njarðvík á fimmtudaginn.

Jonathan Griffin skoraði 28 stig fyrir Grindavík, Páll Axel Vilbergsson 23 og þeir Páll Kristinsson og Þorleifur Ólafsson 12 hvor. Brenton Birmingham skoraði 17 stig fyrir Njarðvík, Igor Beljanski 16 og Friðrik Stefánsson og Jeb Ivey skoruðu 14 hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×