Bíó og sjónvarp

Fyrrum Playboy fyrirsæta í hlutverki Önnu Nicole

Willa Ford mun fara með hlutverk Önnu Nicole Smith
Willa Ford mun fara með hlutverk Önnu Nicole Smith MYND/Getty Images

Söng- og leikkonan, dansarinn og fyrrum Playboy fyrirsætan Willa Ford mun taka að sér hlutverk Önnu Nicole Smith í kvikmynd sem fjalla mun um ævi fyrirsætunnar heitinnar. Tökur á kvikmyndinni hefjast í næstu viku.

Kvikmyndin fjallar um líf Önnu Nicole frá því að hún var 17 ára allt til dauðadags hennar, en hún lést þann 8. febrúar síðastliðinn vegna of stórs skammts af lyfseðilsskyldum lyfjum, aðeins fimm mánuðum eftir að hún eignaðist dóttur sína, Dannielynn.

Fjölmiðlafulltrúi Willu staðfesti í gær að hún hefði tekið að sér hlutverk Önnu Nicole. Willa er helst þekkt fyrir að söng sinn í smellnum ,,I Wanna Be Bad" og hlutverk sitt í raunveruleikaþáttunum ,,Dansað með stjörnunum" sem nú eru sýndir á ABC sjónvarpsstöðinni.

Willa á sitthvað annað sameiginlegt með Önnu Nicole en ljósa hárið en Willa sat eitt sinn nakin fyrir í tímaritinu Playboy en Anna Nicole var valin ,,Leikfélagi ársins" hjá því sama tímariti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.