Bíó og sjónvarp

Marc Forster leikstýrir næstu Bond-mynd

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar
Þeir sex leikarar sem hafa leikið 007, Sean Connery, George Lazenby, Roger Moore, Timothy Dalton, Pierce Brosnan og Daniel Craig.
Þeir sex leikarar sem hafa leikið 007, Sean Connery, George Lazenby, Roger Moore, Timothy Dalton, Pierce Brosnan og Daniel Craig.

Leikstjórinn Marc Forster mun leikstýra næstu Bond mynd. Daniel Craig mun leika Bond í annað sinn í tuttugustu og annarri myndinni um spæjarann. Hún kemur í kjölfar Casino Royal, tekjuhæstu Bond-myndinni til þessa.

Forster, sem er 37 ára gamall, á farsælan feril að baki. Hann hefur meðal annars leikstýrt myndunum Stranger Than Fiction, Monsters Ball og Finding Neverland sem var tilnefnd til sjö Óskarsverðlauna, meðal annars sem besta myndin.

Leikstjórinn segist hlakka til áskorunnarinnar, og að hann hafi alltaf verið aðdáandi Bond. ,,Sú nýja stefna sem Bond-karakterinn hefur tekið býður upp á mikla möguleika, og ég hlakka til að vinna með Daniel Craig"

 

Tökur á myndinni, sem hefur ekki fengið nafn, hefjast í Pinewood Studios í London í desember, en áætlað er að frumsýna myndina 7. nóvember 2008.

21 mynd hafa verið gerðar um spæjarann sjarmerandi. Þær hafa halað inn tæpum 700 milljörðum króna á núvirði, og eru næst tekjuhæsta kvikmyndaröð sem gerð hefur verið, á eftir Star Wars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.