Bíó og sjónvarp

Beðmálamynd endanlega staðfest

Stelpurnar úr Beðmál í borginni.
Stelpurnar úr Beðmál í borginni.

Beðmál í borginni, einn af vinsælustu sjónvarpsþáttum allra tíma, mun loks komast á hvíta tjaldið. Eftir margra mánaða samningaviðræður hafa leikkonur þáttanna þær Sara Jessica Parker, Cynthia Nixon, Kristen Davis og Kim Cattrall loks náð samningum.

Lengi hefur verið beðið eftir kvikmyndinni og um tíma leit út fyrir að ekkert yrði af verkinu. Mikið hefur verið skrifað um málið í slúðurdálka vestanhafs. Aðallega það að Kim Cattrall heimtaði sömu laun og aðalstjarna þáttanna Sara Jessica Parker.

Samkvæmt heimildum tímaritsins Variety verður byrjað að kvikmynda í New York í september á þessu ári. Handritið er hernaðarleyndarmál og ekkert er vitað um það hvort að vinsælar persónur eins og Herra Stór láti sjá sig í myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×