Lífið

Bubbi og Hrafnhildur selja á Nesinu

Bubbi og Hrafnhildur eru á leið í sveitasæluna í Kjósinni.
Bubbi og Hrafnhildur eru á leið í sveitasæluna í Kjósinni. MYND/365

Bubbi Morthens og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir eru búin að setja íbúð sína að Skerjabraut á Seltjarnarnesi á sölu. Íbúðin er ekki nema rúmlega 70 fermetrar og má því ætla að nokkuð þröngt hafi verið í búi. Hún er þó öll nýuppgerð og smekklega innréttuð.

Skötuhjúin eru að byggja heilsárshús við Meðalfellsvatn í Kjós og stefna þau að því að flytja inn þegar líða fer á veturinn. Byggingarframkvæmdir hófust fyrir nokkru og eru veggir farnir að rísa.

Líklega mun það hæfa náttúrubarninu Bubba vel að búa í sveit en lítið mál verður að skjótast í bæinn enda einungis um 40 mínútna akstur til Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.