Besti hagnaður í sögu SPK 31. ágúst 2007 10:55 Sparisjóður Kópavogs. Mynd/Páll
Hagnaður Sparisjóðs Kópavogs (SPK) nam 811 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins samborið við 96 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er 754,7 prósenta aukning á milli ára og sá langbesti en viðlíka hagnaður hefur aldrei sést í bókum sjóðsins. Tímabilið var sjóðnum einstaklega hagfellt og hagnaður langt umfram áætlanir, að því er segir í uppgjörinu.Vaxtatekjur á fyrri hluta ársins námu 1.148 milljónum króna en það er 3,8 prósenta samdráttur á milli ára. Þá jukust vaxtagjöld um 4,8 prósent en þau námu 1.035 milljónum króna. Hreinar vaxtatekjur sparisjóðsins eru 113 milljónir en voru 206 milljónir í fyrra. Vaxtamunur, þ.e. vaxtatekjur að frádregnum vaxtagjöldum í hlutfalli af meðalstöðu heildarfjármagns, er nú 1,0 prósent og lækka úr 2,2 prósentum á tímabilinu. Eigið fé SPK nam rétt tæpum 2,1 milljarði króna í lok síðasta árs og jókst um 664 milljónir á fyrstu sex mánuðum ársins. Aukningin nemur 46,9 prósentum. Arðsemi eiginfjár var 121,5 prósent á ársgrundvelli og hefur hún aldrei verið meiri í sögu SPK. Þá nam eiginfjárhlutfall 14,9 prósentum en það var 11,3 prósent um síðustu áramót.Uppgjör Sparisjóðs Kópavogs
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Efling hafi líklega sett Íslandsmet í óhróðri Bogi í Icelandair kaupir einbýlishús af Pétri í Eykt Fyrrverandi þingmenn vilja verða forstjórar Kríu Sjá meira