Viðskipti innlent

Sameining í orkugeiranum

Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Reykjavik Energy Invest (Rei).
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Reykjavik Energy Invest (Rei). Mynd/Heiða
Sameina á fjárfestingafélögin Reykjavik Energy Invest (REi) og Geysi Green Energy sem bæði fjárfesta í orkuiðnaði. REi er í meirihlutaeigu Orkuveitu Reykjavíkur, en stærsti hluthafi Geysis Green er FL Group.

Samkvæmt heimildum Markaðarins verður sameiningin kynnt á blaðamannafundi seinna í dag.

Forstjóri Rei er Guðmundur Þóroddsson, og framkvæmdastjóri Geysis Green Energy er Ásgeir Margeirsson.

Stjórnarformenn REi og Geysis Green Energy eru Bjarni Ármannsson og Hannes Smárason.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×