Lífið

Kynlífsmyndir af verðandi Danaprinsessu

Óli Tynes skrifar
Marie Cavallier og Jóakim prins.
Marie Cavallier og Jóakim prins.

Svissneski sjentilmaðurinn Anthony D. sem er fyrrverandi kærasti Marie Cavallier verðandi Danaprinsessu hefur nú upplýst að hann eigi kynlífsmyndir og myndbönd af þeim, sem "ekki þoli dagsins ljós," eins og hann orðar það. Frá þessu er sagt í danska vikublaðinu Se og Hör.

Í síðustu viku var fyrrihluti viðtals við Anthony D. birt í blaðinu þar sem hann sagði meðal annars að Marie hefði verið villiköttur í bólinu. Um myndirnar segir Svisslendingurinn að þær séu að minnsta kosti 100 þúsund evra virði.

Se og Hör segir að síðan fyrra viðtalið birtist hafi Marie haft samband við Anthony D. bæði í gegnum síma og með því að senda honum tölvupóst. Blaðið segir að hann hafi svarað með tölvupósti þar sem hann sagðist harma að hún yrði fyrir þrýstingi frá fjölmiðlum.

Anthony D. skreið undan steini þegar tilkynnt var í síðasta mánuði að Marie hefði trúlofast Jóakim Danaprinsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×