Viðskipti erlent

Slæmur fjórðungur hjá BP

Browne ásamt Tony Hayward við forstjóraskiptin í sumar.
Browne ásamt Tony Hayward við forstjóraskiptin í sumar. Mynd/AFP

Árið hefur ekki verið neitt sérstaklega gott fyrir breska olíurisann BP. Fyrrum forstjóri félagsins tók poka sinn í byrjun sumars og nú dróst hagnaður félagsins saman um 45 prósent á milli ára.

Hagnaður olíurisans nam 3,87 milljörðum dala, jafnvirði rúmra 235 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 6,98 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta er engu að síður á pari við væntingar greinenda, sem sögðu Tony Hayward, sem tók við forstjórastólnum af John Browne í sumar, standa frammi fyrir miklum erfiðleikum í rekstri og yrði viðsnúningur kostnaðarsamur. Hayward hafði áður greint frá því að líklega yrði afkoma fjórðungsins skelfileg.

Félagið hefur dregið mjög úr olíuframleiðslu sinni víða um heim, um fjögur prósent í heildina, meðal annars vegna viðgerða á verksmiðjum og fleiri þátta.

Greinendur eru á einu máli um að með þessum gjörningi hafi BP misst af miklum tækifærum, sem fólust í verðhækkunum á hráolíu á seinni hluta árs. Þá mun þúsundum manna verða sagt upp störfum á næstunni í hagræðingaskyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×