Viðskipti erlent

Mikill samdráttur í fasteignasölu í BNA

Hús til sölu í Bandaríkjunum. Salan dróst saman um átta prósent á milli mánaða í september.
Hús til sölu í Bandaríkjunum. Salan dróst saman um átta prósent á milli mánaða í september. Mynd/AFP

Sala á notuðu húsnæði dróst saman um átta prósenta á milli mánaða í Bandaríkjunum í september en samdráttur sem þessi hefur ekki sést vestanhafs í sextán ár. Þá er þetta nokkru meiri samdráttur en reiknað var með.

Fasteignaverð lækkaði að sama skapi um 4,2 prósent á milli mánaða, samkvæmt útreikningum Samtaka fasteignasala í Bandaríkjunum.

Fjármálasérfræðingar segja þetta vísbendingu um að samdráttarskeið geti vofað yfir vestanhafs, að sögn breska ríkisútvarpsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×