Viðskipti erlent

Fjárfestar bíða stýrivaxtadags

Fjárfestar í Bandaríkjunum bíða nú óþreyjufullir eftir niðurstöðu vaxtaákvörðunarfundar bankastjórnar bandaríska seðlabankans, sem verður gerð opinber á miðvikudag.
Fjárfestar í Bandaríkjunum bíða nú óþreyjufullir eftir niðurstöðu vaxtaákvörðunarfundar bankastjórnar bandaríska seðlabankans, sem verður gerð opinber á miðvikudag. Mynd/AP

Gengi helstu hlutabréfavísitalna hækkaði við lokun hlutabréfamarkaða í Bandaríkjunum í dag. Fjármálaskýrendur höfðu gert ráð fyrir mikilli hækkun enda vaxtaákvörðunardagur vestanhafs á miðvikudag. Nokkurrar spennu gætir á meðal fjárfesta.

Flestir gera ráð fyrir að bankastjórn bandaríska seðlabankans, sem hefur tveggja daga vaxtaákvörðunarfund sinn á morgun, muni ákveða að lækka stýrivexti um 25 til 50 punkta. Flestir reikna með 25 punkta lækkun. Gangi það eftir fara stýrivextir úr 4,75 prósentum í 4,5 prósent.

Aðrir benda á að seðlabankinn gæti komið á óvart líkt og fyrir mánuði og lækkað stýrivexti um allt að 50 punkta vegna aðstæðna í efnahagslífinu sem óttast er að geti dregið úr hagvexti.

Dow Jones-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,45 prósent og stendur hún í 13.870,265 stigum. Nasdaq-vísitalan hækkaði um 0,47 prósent og endaði í 2.817,44 stigum.

Á sama tíma lækkaði Úrvalsvísitalan um 0,47 prósent í Kauphöllinni hér en vísitalan stendur í 8.163 stigum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×