Viðskipti erlent

Hagnaður Deutsche Bank jókst um 31 prósent

Josef Ackermann, forstjóri Deutsche Bank. Hagnaður bankans jókst um 31 prósent þrátt fyrir skell á bandarískum fasteignalánamarkaði.
Josef Ackermann, forstjóri Deutsche Bank. Hagnaður bankans jókst um 31 prósent þrátt fyrir skell á bandarískum fasteignalánamarkaði. Mynd/AFP

Hagnaður Deutsche Bank nam 1,62 milljörðum evra, jafnvirði tæplega 141 milljarðs króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 1,24 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta er 31 prósents hækkun á milli ára og nokkuð yfir væntingum. Inn í afkomutölurnar koma endurgreiddir skattar og hagnaður af sölu eigna sem vegur upp á móti fyrsta tapi af fjárfestingum bankans í heil fimm ár.

Bankinn varð að afskrifa 2,16 milljarða evra á tímabilinu vegna tapaðra útlána á bandarískum fasteignalánamarkaði. Það er í takt við skarðið sem lausafjárkrísan hjó í afkomu fjölmargra fjármálafyrirtækja á fjórðungnum.

Hagnaður á hlut nam 3,31 evru samanborið við 2,43 evrur á sama tíma í fyrra.

Fréttaveita Bloomberg hefur eftir Josef Ackermann, forstjóra Deutsche Bank, að útlit sé fyrir að bankinn hafa yfirstigið helstu hindranir og spáir hann því að yfirstandandi fjórðungur verði með hefðbundnu sniði. Þá sé reiknað með að bankinn nái áætlunum sínum á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×