Viðskipti erlent

Fjárfestar bjartsýnir víða um heim

Gærdagurinn var heldur annasamur á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í gær enda ruku vísitölur þar í landi upp allan daginn.
Gærdagurinn var heldur annasamur á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í gær enda ruku vísitölur þar í landi upp allan daginn. Mynd/AP

Gengi helstu hlutabréfavísitalna hafa hækkað talsvert í Asíu og Evrópu í dag eftir mikla hækkun í Bandaríkjunum í gær. Fjárfestar þykja bjartsýnir á að fjármálakrísan sé ekki eins slæm og af var látið þrátt fyrir að fasteignalán hafi sett skarð í afkomu bandarískra og japanskra fjármálastofnana.

Dow Jones-vísitalan hækkaði 2,46 prósent við lokun fjármálamarkaða í Bandaríkjunum í gær en Nasdaq-vísitalan rauk upp um 3,46 prósent. Þá hækkaði Nikkei-hlutabréfavísitalan í Japan um 2,5 prósent í morgun. Þá rauk Hagn Seng-vísitalan í Hong Kong upp um 3,7 prósent.

Inn í spilar að bankar, sér í lagi Goldman Sachs, telja sig ekki þurfa að afskrifa jafn háar upphæðir í tengslum við fasteignalán auk þess sem olíuverð hefur lækkað nokkuð í vikunni eftir að hafa staðið í hæstu hæðum í síðustu viku.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×