Lífið

Playboy frjálslyndara en Southwest

Kyla í Southwest gallanum. Og í Playboy gallanum.
Kyla í Southwest gallanum. Og í Playboy gallanum.

Kyla Ebbert komst í heimsfréttirnar í sumar þegar bandaríska flugfélagið Southwest ætlaði að reka hana frá borði vegna þess að hún var í svo stuttu pilsi.

Eftir mikið japl og jaml og fuður fékk hún þó að fara með, gegn því að klæða sig betur.

Tímaritið Playboy hefur sýnt sig að vera frjálslyndara en Southwest, sem kemur nú kannski ekki beinlínis á óvart. Playboy gerði Kylu tilboð sem hún gat ekki hafnað.

Og nú prýðir hún síður blaðsins. Talsvert minna klædd en hún var þegar flugfélagið vildi reka hana frá borði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×