Viðskipti innlent

Marel hækkar í Kauphöllinni

Árni Oddur Þórðarsson, stjórnarformaður Marels, sem hefur hækkað um rúmt prósent í Kauphöllinni í dag.
Árni Oddur Þórðarsson, stjórnarformaður Marels, sem hefur hækkað um rúmt prósent í Kauphöllinni í dag. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa í Marel hækkaði um rétt rúmt prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag en fyrirtækið tilkynnti í morgun að það hefði náð samkomulagi við breska fjárfestingafélagið Candover þess efnis að Marel eignist matvælavinnsluvélahluta hollensku iðnsamstæðunnar Stork. Eignarhaldsfélagið LME, sem Marel á fimmtungshlut í ásamt Eyri Invest og Landsbankanum, á um 43 prósent í Stork-samstæðunni.

Century Aluminum hefur hækkað mest það sem af er dags, eða um 1,58 prósent en Landsbankinn um 0,55 prósent.

Á sama tíma hefur gengi bréfa í FL Group haldið áfram að lækkaði í verði, eða um rétt rúm prósent. Gengi bréfa í félaginu stendur nú í 19,45 krónum á hlut.

Þróunin í Kauphöllinni hefur verið á svipuðum nótum og síðustu daga en fjárfestingafyrirtæki og bankar lækkað í kringum prósent.

Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,36 prósent í dag og stendur vísitalan í 6.650 stigum. Hún hefur ekki veirð lægri síðan snemma í janúar á þessu ári.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×