Viðskipti erlent

Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu

Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans, sem ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum. Hann greinir frá rökstuðningi bankans síðar í dag.
Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans, sem ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum. Hann greinir frá rökstuðningi bankans síðar í dag. Mynd/AFP

Bankastjórn evrópska seðlabankans ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum. Flestir höfðu reiknað með þessari niðurstöðu þrátt fyrir að verðbólga hafi ekki mælst meiri í sex ár og gengi evrunnar með sterkasta móti. Á móti vegur yfirvofandi ótti manna við minnkandi hagvöxt í skugga lausafjárkreppunnar sem sett hefur skarð í afkomu fjölmargra banka í álfunni.

Fréttastofa Associated Press hefur eftir fjármálasérfræðingum að líkur séu á því að bankinn muni bíða með það allt fram á annan fjórðung á næsta ári með að gera breytingar á stýrivaxtastiginu eins og aðstæður séu núna. Þegar að því kemur er reiknað með að vextirnir taki að lækka í skjóli breyttra aðstæðna á fjármálamörkuðum.

Þá segir fréttastofan, að sérfræðingar muni rýna vandlega í öll ummæli Jean-Claude Trichet, bankastjóra seðlabankans, þegar hann flytur rök stjórnarinnar fyrir ákvörðuninni síðar í dagi. 

Breski seðlabankinn ákvað óvænt í dag að lækka vexti sína auk þess sem flestir búast við svipuðum aðgerðum hjá bandaríska seðlabankanum í næstu viku.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×