Deilt um meint fermingarklám 9. mars 2007 10:15 Foreldrar fyrirsætunnar ungu skoða nú hvort Guðbjörg Helga hafi gerst sek um meiðyrði. „
Hún hlýtur að hafa séð að sér. Hún er búin að taka færsluna niður. Það segir allt sem segja þarf," segir Eva Dögg Sigurgeirsdóttir markaðsstjóri Smáralindar. Doktor Guðbjörg Hildur Kolbeins, stundakennari í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands, sendi í gær Umboðsmanni barna erindi og vill meina að unga stúlkan sem er á forsíðu fermingarbæklings Smáralindar sé í „velþekktri stellingu úr klámmyndum." Lýsingar Guðbjargar á bloggi sínu, í tengslum við myndina, voru með þeim hætti að engin leið er fyrir borgaralegt blað að vitna í þær. Guðbjörg Hildur tók skrifin út af síðu sinni í gær. Þorbjörn Broddasson, blogg útbreiddur fjölmiðil og það sem eitt sinn hefur verið sett þar inn hverfur ekki svo glatt. Faðir fyrirsætunnar ungu segir hins vegar í samtali við Fréttablaðið að foreldrarnir hafi ekki enn náð utan um þetta mál. En verði ljóst að lektor við Háskóla Íslands hafi gerst sekur um meiðyrði um 14 ára barn sé líkast til ástæða til að athuga það betur. Viðbrögðin létu ekki á sér standa í Smáralindinni og Eva Dögg segist aldrei hafa upplifað annað eins í tengslum við störf sín. Blaðið uppurið og öll voru þau jákvæð í garð Smáralindar og lét fólk í ljósi mikla vandlætingu á túlkun Guðbjargar að sögn Evu Daggar. Þorbjörn Broddason, prófessor í fjölmiðlafræði við HÍ, segir í samtali við Fréttablaðið alla vita að bloggið, þessi einkafjölmiðill, sé útbreiddari en nokkur annar fjölmiðill. Guðbjörg Hildur Kolbeins vildi ekki tjá sig um málið í gær. „Hver einasta nettengda tölva í heiminum hefur aðgang að þessari síðu. Upplag upp á milljóna hundruð. Um leið er þessi óhemju útbreiddi fjölmiðill algerlega í höndum eiganda síns sem getur kippt því til baka sem sett hefur verið þangað inn." Aðspurður hvernig þetta horfi við fjölmiðlafræðinni þegar frumheimild sé kippt út sem svo mjög er vitnað til segir hann Guðbjörgu Hildi, eins og alla bloggara, taka þá áhættu að skrifin séu afrituð. „Bloggarinn hlýtur að gera sér grein fyrir því að ekkert hefur verið fjarlægt endanlega. Hver sem er getur birt þetta aftur eftir að hafa afritað og haft opið áfram." Eva Dögg Sigugeirsdóttir. Aldrei fengið eins mikil viðbrögð við nokkru sem hún hefur gert og Fermingarblaðið uppurið. Þorbjörn segist telja að Guðbjörg hafi einhverjar meining með því að fjarlægja skrifin. Aðspurður hvort teljist saknæmt það sem látið er flakka á netinu bendir Þorbjörn á næsta símanúmer sem er lagadeildarinnar. En hans mat er að ef menn hafa viðhaft eitthvað saknæmt með orðum sínum á netinu sé það ekkert búið þó færslan hafi verið fjarlægð. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná í Guðbjörgu Hildi til að tjá sig um hvað olli því að hún tók skrifin niður, hvað þá af hverju hún setti þau upp. En skilaboð hennar til blaðamanns voru á þá leið að hún hefði tekið þá ákvörðun að ræða þetta mál ekki „frekar" við fjölmiðla þann daginn.
Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Ebba Katrín og Oddur keyptu hús í miðbænum Sjá meira