Bíó og sjónvarp

Launahækkun læknanna í Grey's Anatomy

Ellen Pompeo brosir líklega breitt þessa dagana enda þénar hún vel á hlutverki sínu sem Dr. Meredith Grey
Ellen Pompeo brosir líklega breitt þessa dagana enda þénar hún vel á hlutverki sínu sem Dr. Meredith Grey MYND/Getty Images

Grey's Anatomy stjarnan Ellen Pompeo, sem leikur Dr. Meredith Grey í þáttaröðinni vinsælu, hefur gert nýjan samning við ABC. Er samningurinn metinn á næstum 200 þúsund dollara fyrir hver þátt, en það jafngildir rúmum 13,5 milljónum króna. Eru um 20 þættir í hverri seríu.

Aðrir leikarar í þáttunum, þau James T. Pickens Jr., Chandra Wilson, Justin Chambers og T.R. Knight, hafa einnig gert nýjan samning upp á 125 þúsuns dollara á þátt hvert.

Ekki er ljóst hver samningsupphæð Isaiah Washington er, en talið er að hann haldi leik sínum í þáttunum áfram án launahækkunar vegna orða sem hann lét falla í garð samkynhneygðra.

Patrick Dempsey, Sandra Oh og Katherine Heigl eru ennþá að vinna að samningum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.