Fastir pennar

Íslandsálagið

Björgvin Guðmundsson skrifar

Það er erfitt fyrir almenning að átta sig á hvað yfirstandandi hræringar á fjármálamörkuðum þýða. Í raun er erfitt fyrir flesta að spá fyrir um afleiðingar óróleikans sem nú ríkir bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Eitt er víst. Eignir margra Íslendinga, innlendar og erlendar, hafa hríðfallið í verði undanfarnar vikur. Óróleikinn mun því kosta marga skildinginn. Og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja hefur versnað. Dýrara er að fá peninga að láni en áður. Sú hækkun endurspeglast síðan í hærri vöxtum til viðskiptavina.

Flestir eru samt sammála um að þessi ólga muni ekki hafa alvarleg eða varanleg áhrif á íslenska fjármálakerfið í heild. Óvissan um hversu lengi hún muni vara er verst.

Mörg fjárfestingarfélög standa tæpt og þola ekki miklar lækkanir á hlutabréfamörkuðum í viðbót. Starfsmenn fjármálafyrirtækja hafa staðið í ströngu í vikunni við að kalla eftir auknum tryggingum fyrir skuldum fjárfesta. Sumir eru veðsettir upp í topp. Í þeim tilvikum þurfa þeir að leggja fram laust fé eða selja eignir og lækka skuldir. Líklegt er að á næstu dögum þurfi eigendur að styrkja frekar félög sem tapað hafa miklum peningum. Þróunin á mörkuðum ræður því svo hversu víðtækt og opinbert

það verður.

Gengislækkun fyrirtækja sem eru skráð í Kauphöll Íslands helst í hendur við þróun á erlendum mörkuðum. Þetta hefur verið kallað lausafjárkreppa. Ástæðan er rakin til fasteignalána í Bandaríkjunum. Árið 2006 fór að bera á vanskilum, veð voru ófullnægjandi, lánshlutfall hátt og fasteignaverð lækkaði víða. Erlend fjármálafyrirtæki hafa afskrifað milljarða og verðmæti

þeirra rýrnað. Mörg íslensk fyrirtæki eru umsvifamikil í fjárfestingum um allan heim. Því er eðlilegt að gengi þeirra sveiflist í takt við verðmæti erlendra eigna. Annað væri óeðlilegt og merki um óheilbrigðan markað.

Við þessar aðstæður í heiminum er ástandið viðkvæmt. Neikvæðar fréttir hafa meiri áhrif en ella. Á þriðjudaginn sagði alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's að horfur á lánshæfismati íslenska ríkisins væru neikvæðar. Meiri hætta væri á harðari lendingu hagkerfisins eftir nokkurt þensluskeið. Í kjölfarið hefur áhættuálag íslenskra banka hækkað enn meira. Það er dýrara fyrir þá að fá að fjármagna starfsemi sína. Svo virðist

sem íslensk fjármálafyrirtæki fari verr út úr þessum lausafjárskorti

á alþjóðamörkuðum en aðrir norrænir bankar.

Þetta hefur verið kallað Íslandsálag. Richards Porters, prófessor í London Business School, sem vann ásamt fleirum skýrslu um stöðu íslenska fjármálakerfisins, sagði á fundi í London í vikunni að ekki væri hægt að réttlæta þetta álag miðað við stöðu íslenska hagkerfisins. Sagði hann að fjármálafyrirtæki hér væru vel í stakk búin til að mæta erfiðleikum á alþjóð legum mörkuðum. Fyrirtækin hefðu brugðust vel við gagnrýni sem

sett var fram á þau snemma árs 2006.

Íslensk fjármálafyrirtæki hafa alla burði til að komast þokkalega í gegnum þessa erfiðleika. Lögin, stofnanakerfið og rekstrarumhverfi eru traust. Mikil ábyrgð hvílir á herðum stjórnenda fjármálafyrirtækja og opinberra stofnana við þessar aðstæður. Þeir verða að axla þá ábyrgð til að tryggja fjármálastöðugleika í stað þess að grafa undan honum.






×