Bíó og sjónvarp

Ástir töframanns

Fyrirmyndin er Erik Jan Hanussen, vel þekktur töframaður í Vín sem var drepinn af nasistum árið 1933.
Fyrirmyndin er Erik Jan Hanussen, vel þekktur töframaður í Vín sem var drepinn af nasistum árið 1933.

Græna ljósið tekur til sýninga kvikmyndina The Illusionist um helgina en hún segir frá töframanninum Eisenheim sem lendir í útistöðum við Leopold krónprins í Vín og lögregluyfirvöld.

Eisenheim virðist geta beygt og brotið öll náttúrulögmál að eigin geðþótta og töfrabrögðin hafa vakið athygli hjá lögregluyfirvöldum borgarinnar og þar fer fremstur í flokki rannsóknarlögreglumaðurinn Uhl sem telur galdra ekkert meir en verk loddara. Honum tekst þó ekki að klína neinu á töframanninn og hæfileikar Eisenheim berast alla leið til krónprinsins Leopol sem ólmur vill fá að sjá herlegheitin.

Eisenheim, fullur af sjálfstrausti, heldur til hallar prinsins en málin taka óvæntan snúning þegar unnusta Leopolds reynist vera gömul ástkona Eisenheim og dvöl galdrakarlsins verður til þess að það kviknar í gömlum glæðum. Með helstu hlutverk fara þeir Edward Norton og Paul Giamatti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.