Tónlist

Stór nöfn bætast við

Arcade Fire spilar á Hróarskeldu í ár.
Arcade Fire spilar á Hróarskeldu í ár.

Hljómsveitirnar Muse og Arcade Fire hafa bæst í hóp þeirra sem troða upp á Hróarskelduhátíðinni í byrjun júlí. Muse gaf út plötuna Absolution í fyrra sem hefur fengið góðar viðtökur. Arcade Fire, sem hefur aldrei spilað á Hróarskeldu, gaf nýverið út sína aðra plötu, Neon Bible.

Á meðal annarra þekktra nafna á Hróarskeldu í sumar verða Björk, Red Hot Chili Peppers og Slayer. Miðasala á hátíðina fer fram á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×