Lífið

Uma að hætta leik?

Uma Thurman mætir á frumsýningu myndar sinnar My Super Ex-Girlfriend í New York sl. sumar.
Uma Thurman mætir á frumsýningu myndar sinnar My Super Ex-Girlfriend í New York sl. sumar. MYND/Getty Images

Kvikmyndaleikkonan Uma Thurman íhugar nú að gefa leikferil sinn upp á bátinn og helga sig uppeldishlutverkinu. Uma hefur leikið í stórum myndum nýverið eins og Kill Bill og My Super Ex-Girlfriend. En nú hefur hún gefið upp að hún íhugi breytingu.

Uma sagði breska dagblaðinu Daily Mirror að hún elskaði starf sitt; "En ég er að hugsa um að verða heimavinnandi móðir."

Uma á tvö born með fyrrverandi manni sínum, leikaranum Ethan Hawke, en hún segist ekki vera á leið upp að altarinu með núverandi kærasta, Andre Balazs. "Ég er ekki að fara að gifta mig," sagði hún; "Félagi sem þú treystir er ómetanlegur fyrir alla, og þeir sem ég treysti mest eru börnin mín."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.