Bakþankar

Tilraunaeldhúsið

Þórgunnur Oddsdóttir skrifar

Ilmur af íslenskri kjötsúpu tók á móti mér þegar ég kom heim úr skólanum í gær. Ég brosti út í annað enda benti lyktin til þess að atvinnulausi bankamaðurinn á heimilinu hefði ekki setið auðum höndum þann daginn.

Sú var líka raunin. Þvottur hafði verið þveginn, gólfin þrifin og á eldhúsbekknum stóðu heilir staflar af nýbökuðu bakkelsi. Að ógleymdri kjötsúpunni ljúffengu sem beið á hellunni og bankastarfsmaðurinn fyrrverandi hrærði í af mikilli natni líkt og hann væri að sjóða saman viðkvæmar afleiður í stórri skuldasúpu.

Vitanlega var það bara blekking að það væri alvöruvinna að fylgjast með tölum á tölvuskjá. Afdankaði bankamaðurinn hefur enda blómstrað þessa daga sem liðnir eru síðan bankakerfið skilaði honum. Viku eftir hrunið mikla var hann kominn norður í land og farinn að vinna þar raunverulega vinnu eins og að mjólka kýr og dreifa skít. Menn segja að bankakreppan kenni okkur að meta framleiðslustörfin á ný og bankastarfsmaðurinn fyrrverandi á eftir að sjá að maður uppsker eins og maður sáir. Túnin sem hann jós skít á dögunum munu skila góðri sprettu næsta sumar. Ólíkt þeirri sviðnu jörð sem blasir við eftir mykjudreifarana sem á ferð voru í fjármálaheiminum.

Það hefur svona rétt hvarflað að mér hvort ekki væri réttast að senda ríkisstjórnina, seðlabankastjórnina og bankastjórana í sveit líkt og venja var með ódæla drengi hér áður fyrr. Þar myndi þetta ágæta fólk læra fyrir hvað orðið „búskapur" í hugtakinu „þjóðarbúskapur" stendur og hvers vegna við segjum að kálfurinn launi sjaldnast ofeldið. Sveitadvölin hafði að minnsta kosti afar góð áhrif á bankamanninn á mínu heimili sem er hinn rólegasti þessa dagana og hefur boðið upp á hefðbundinn íslenskan heimilismat í hvert mál síðan hann sneri aftur í bæinn.

Þegar kjötsúpan kláraðist í gær og búið var að kveikja á sjónvarpsfréttunum helltust skyndilega yfir mig gríðarlegar áhyggjur. Er ekki bókstaflega allt farið fjandans til hér á Íslandi? Ég reyndi að ræða um ástandið við bankamanninn sem virtist ekki heyra í mér, lagði bara frá sér kökublað Gestgjafans sem hann hafði verið að blaða í og tjáði mér að hann hygðist hefja smákökubaksturinn strax eftir helgi. Mín vegna má kreppan vara aðeins lengur. Ég þarf að minnsta kosti ekki að hafa áhyggjur af því að svelta.






×