Menning

Tenór á túr

Tenórinn Guðmundur Ólafsson  í hlutverki sínu.
Tenórinn Guðmundur Ólafsson í hlutverki sínu.

Leikverk Guðmundar Ólafssonar, Tenórinn, var frumsýnd á Berjadögum norður í Ólafsfirði í ágúst 2003 og þá um haustið í Iðnó þar sem sýningin var á fjölunum í tvö ár. Hún var tekin upp haustið 2006 og leikin í Freyvangi í Eyjafjarðarsveit fyrir troðfullu húsi.

Sýningin hlaut mikið lof gagnrýnenda sem sögðu meðal annars að „lafhægt væri að pissa á sig af hlátri" og ekki voru viðtökur áhorfenda síðri.

Nú er Guðmundur aftur kominn á kreik og sækir austur á land með tenórinn viðkvæma eða eins og segir í fréttatilkynningu: „Nú er söngvarinn enn og aftur búinn að ræskja úr sér sumarleyfishæsi og grillbrækju og hefur ákveðið að slíta sig frá stanslausum og innihaldssnauðum slímusetum á kaffihúsum höfuðborgarinnar og ætlar að fara út á landsbyggðina til að leyfa fólkinu þar að njóta göfugrar listar sinnar og gefa þar með sífelldu tali um kreppu, lánsfjárörðugleika, skuldatryggingaálag og slæma stöðu fjármálafyrirtækja hérlendis sem erlendis langt nef."

Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson, Guðmundur Ólafsson er tenórinn og undirleikarann leikur Sigursveinn Kr. Magnússon. Sýningar verða á eftirtöldum stöðum: 9. október í Valaskjálf á Egilsstöðum, 10. október í Miklagarði í Vopnafirði, 11. október í Samkomuhúsinu á Húsavík og loks 12. októ­ber í Skjólbrekku í Mývatnssveit.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.