Bíó og sjónvarp

Dauðadjásnin verða að tveimur kvikmyndum

Tvær kvikmyndir verða gerðar úr síðustu Harry Potter bókinni, Harry Potter og Dauðadjásnin, að sögn fjölmiðla vestanhafs. Fyrri myndin lítur dagsins ljós í nóvember árið 2010 og sú seinni í maí árið eftir.

Búist er við að framleiðendur myndinarinnar gefi út yfirlýsingu um þetta í dag. Los Angeles Times hefur það eftir einum framleiðendanna að erfitt hafi reynst að stytta bókina, og því gripið til þessa ráðs. Myndirnar verða þó skotnar á sama tíma, svipað og gert var við Lord of the Rings trílógíuna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.